Um okkur

Útfararstjórar

 

Sverrir Einarsson

Hefur starfað við útfararþjónustu frá 1979 og er eigandi Útfararstofu Íslands.

Jón G. Bjarnason

Jóhanna Eiríksdóttir

Guðmundur Örn Jóhannsson

Framkvæmdastjóri/Útfarir

Útfararstofa Íslands

Útfararstofa Íslands var stofnuð árið 1996 af Sverri Einarssyni, sem er eigandi fyrtækisins. Samstarfsfélagi Sverris við stofnun útfararstofunnar var Sverrir Olsen, en saman höfðu þeir unnið við útfararþjónustu hjá kirkjugörðum Reykjavíkur í fjölda ára. Sverrir Olsen lést árið 2005. Árið 1999 hóf Baldur Frederiksen, útfararstjóri, störf hjá útfararstofunni en hann hafði einnig unnið í mörg ár við útfararþjónustu hjá Kirkjugörðunum með þeim félögum Sverri E. og Sverri O. Árið 2000 hóf nýútskrifaður guðfræðingur, Bryndís Valbjarnardóttir, störf hjá útfararstofunni, en þá var hún ein fyrsta konan sem starfaði sem útfararstjóri í fullu starfi. Skrifstofa Útfararstofu Íslands að Auðbrekku 1, Kópavogi.

Sverrir Einarsson

Sverrir Olsen

Baldur Frederiksen

Bryndís Valbjarnardóttir

Hvar erum við?

Skrifstofa Útfararstofu Íslands er til húsa í Auðbrekku 1, Kópavogi og er þar góð aðstaða sem prestar/athafnarstjórar og aðstandendur geta rætt saman í næði. Samstarfsaðili okkar er Útfararstofa Hafnarfjarðar sem er til húsa í Flatahrauni 5a, Hafnarfirði. Hægt er að hafa samband við þá í síma 565 5892.

Vegna eðlis starfseminnar eru aðstandendur hvattir til að bóka viðtalstíma með því að senda okkur skilaboð eða hafa samband í síma 581 3300 eða 896 8242 en skrifstofan er opin frá 8.00 til 17.00 virka daga, en þjónusta er allan sólarhringinn og um helgar.