Starf útfararstjóra er sérstakt að því leyti að það sameinar mikla ábyrgð, nákvæmni og náin samskipti við fólk á einum viðkvæmasta tíma lífsins.
Þegar ástvinur fellur frá þurfa aðstandendur oft að takast á við sorgina á sama tíma og fjölmörg praktísk atriði kalla á athygli. Þá er hlutverk útfararstjórans að skapa ákveðna festu í ferlinu, leiða aðstandendur áfram, sjá um framkvæmdina og tryggja að óskir fjölskyldunnar og hins látna séu virtar.
Bak við hverja útför liggur því töluvert meiri vinna en það sem sést á sjálfum útfarardeginum.
Fyrstu skrefin eftir andlát
Fyrir marga er fyrsta samtalið við útfararstjóra jafnframt fyrsta skrefið inn í ferli sem þeir þekkja lítið eða ekkert.
Spurningarnar geta verið margar: Hvað gerist næst? Hvað þurfum við að gera? Hvenær þarf að ákveða hlutina? Hvern þurfum við að hafa samband við?
Útfararstjórinn hjálpar aðstandendum að ná utan um næstu skref og útskýrir hvað þarf að gera og í hvaða röð. Ekki er ætlast til þess að fjölskyldan þekki ferlið eða mæti með allar ákvarðanir teknar. Hluti af þjónustunni felst einmitt í því að leiða fólk í gegnum það.
Margar ákvarðanir sem skapa eina heild
Við undirbúning útfarar þarf að huga að fjölmörgum atriðum.
Ákveða þarf meðal annars fyrirkomulag athafnar, stað og tíma, kistu, kistulagningu, tónlist, sálmaskrá, blóm og ýmis önnur atriði. Ef bálför verður fyrir valinu þarf einnig að huga að því sem henni tengist, svo sem vali á duftkeri og jarðsetningu þess.
Útfararstjórinn heldur utan um þessa þræði og vinnur með þeim aðilum sem koma að útförinni. Það getur meðal annars verið prestur eða annar athafnarstjóri, kirkja eða athafnarstaður, tónlistarfólk, kirkjugarðar, blómabúðir og aðrir þjónustuaðilar.
Fyrir aðstandendur getur það skipt miklu að þurfa ekki sjálfir að halda utan um öll þessi samskipti.
Engar tvær útfarir eru eins
Þótt ákveðin atriði séu sameiginleg flestum útförum er hver útför einstök.
Fólk hefur ólíkar hefðir, trú, lífsskoðanir og hugmyndir um hvernig það vill kveðja. Sumir vilja hefðbundna kirkjulega athöfn á meðan aðrir kjósa einfaldari eða persónulegri útfærslu.
Góður útfararstjóri hlustar því ekki aðeins eftir því hvað þarf að framkvæma heldur reynir einnig að skilja hverju fjölskyldan sækist eftir.
Stundum felst það í litlum atriðum, til dæmis ákveðnu lagi, ljósmynd, blómum eða hlut sem tengist áhugamáli hins látna. Slík smáatriði geta haft mikla þýðingu og hjálpað til við að gera kveðjustundina persónulega.
Að vera til staðar þegar aðstandendur syrgja ástvin sinn.
Einn mikilvægasti þáttur starfsins verður ekki settur á gátlista. Því það er einfaldlega nærveran, samúðin og traustið. Sorg birtist með ólíkum hætti og aðstæður fjölskyldna eru mismunandi. Sum andlát koma eftir langvarandi veikindi en önnur verða skyndilega og án nokkurs fyrirvara. Fjölskyldur geta verið vel undirbúnar eða staðið frammi fyrir ákvörðunum sem aldrei hafa verið ræddar áður.
Útfararstjóri þarf því að geta lesið aðstæður, hlustað og gefið fólki þann tíma og það svigrúm sem það þarf, um leið og tryggt er að nauðsynlegir hlutir komist í réttan farveg. Fagmennska í starfinu snýst þess vegna ekki eingöngu um að þekkja ferlið. Hún snýst líka um samskipti, nærgætni og skilning á mismunandi aðstæðum fólks.
Vinnan sem ekki sést
Þegar gestir mæta til útfarar er markmiðið að allt gangi fyrir sig af yfirvegun, ró og virðingu. Til þess þarf gott skipulag og vinna í undirbúningnum að liggja fyrir.
Útfararstjórinn hefur þá unnið að undirbúningi athafnarinnar, samræmt þá sem koma að henni og gengið úr skugga um að þau atriði sem fjölskyldan hefur ákveðið séu til staðar.
Á sjálfum útfarardeginum þarf jafnframt að fylgjast með framkvæmdinni og bregðast við ef eitthvað óvænt kemur upp.
Þegar vel tekst til á þessi vinna helst ekki að vera áberandi. Aðstandendur eiga ekki að þurfa að hugsa um skipulagið heldur eiga þeir að geta verið til staðar, kvatt og átt stundina með fjölskyldu og vinum.
Traust skiptir mestu máli
Aðstandendur fela útfararstjóra mikið traust. Þeir treysta honum fyrir síðustu kveðjustund ástvinar og mörgum persónulegum ákvörðunum sem henni tengjast. Þess vegna skiptir reynsla, virðing, trúnaður og fagleg vinnubrögð miklu máli í þessu starfi.
Hjá Útfararstofu Íslands hefur þjónusta við aðstandendur verið kjarninn í starfseminni í þrjá áratugi, eða allt frá árinu 1996 þegar stofan hóf starfsemi. Í gegnum árin höfum við komið að fjölbreyttum útförum og aðstæðum, en grundvallaratriðið hefur alltaf verið hið sama; að mæta hverri fjölskyldu þar sem hún er stödd og veita henni þann stuðning og þjónustu sem hún þarf.
Að létta undir á erfiðum tíma
Útför n er mikilvæg kveðjustund í lífi fjölskyldu. Hlutverk útfararstjórans er að sjá til þess að framkvæmdin sé í öruggum höndum, leiðbeina þegar spurningar vakna og létta eins mikið og hægt er af þeim praktísku verkefnum sem fylgja. Þannig skapast meira svigrúm fyrir aðstandendur til að sinna því sem enginn annar getur gert fyrir þá, að syrgja, minnast og kveðja.
