Þegar ástvinur fellur frá taka við dagar sem geta verið bæði tilfinningaþrungnir og krefjandi. Á sama tíma og aðstandendur takast á við sorgina þarf að huga að ýmsum praktískum atriðum og taka ákvarðanir um útförina.
Fyrir marga er þetta í fyrsta sinn sem þeir standa frammi fyrir slíkum undirbúningi og því eðlilegt að vita ekki hvar á að byrja eða hvaða ákvarðanir þarf að taka.
Hlutverk útfararstjóra er meðal annars að leiða aðstandendur í gegnum þetta ferli, útskýra þá valkosti sem standa til boða og sjá til þess að undirbúningurinn gangi eins vel og kostur er.
Fyrstu ákvarðanirnar
Eitt af því fyrsta sem þarf að ákveða er hvernig útförin á að fara fram. Ef hinn látni hafði látið í ljós óskir um eigin útför geta þær verið mikilvægur leiðarvísir fyrir aðstandendur.
Meðal þess sem þarf að huga að er hvort um verði að ræða hefðbundna jarðarför eða bálför, hvar athöfnin eigi að fara fram og hvenær.
Einnig þarf að ákveða hvort athöfnin verði trúarleg eða borgaraleg. Útfarir geta farið fram í kirkjum og kapellum en einnig á öðrum stöðum eftir óskum og aðstæðum.
Val á kistu og duftkeri
Kista er valin fyrir allar útfarir, hvort sem um jarðarför eða bálför er að ræða. Úrval kista er fjölbreytt og getur meðal annars verið mismunandi hvað varðar útlit, efnisval og verð.
Ef bálför verður fyrir valinu þarf síðar einnig að velja duftker og ákveða hvernig staðið verður að jarðsetningu þess.
Útfararstjóri getur farið yfir mismunandi valkosti með aðstandendum og aðstoðað við að finna lausn sem hentar óskum fjölskyldunnar.
Kistulagning
Kistulagning er stund sem nánustu aðstandendur geta átt og er fyrir marga dýrmæt stund til að kveðja hinn látna áður en útförin fer fram.
Það þarf meðal annars að ákveða hvort kistulagning fari fram, hverjir verða viðstaddir og hvort kistan verði opin eða lokuð. Fjölskyldur hafa ólíkar óskir hvað þetta varðar og engin ein leið er rétt.
Útfararstjóri fer yfir framkvæmdina með aðstandendum og svarar þeim spurningum sem kunna að vakna.
Tónlist og sálmar
Tónlist getur sett sterkan og persónulegan svip á útför. Sumir velja hefðbundna sálma en aðrir lög sem hinn látni hafði sérstakt dálæti á eða hafa ákveðna merkingu fyrir fjölskylduna.
Því þarf að ákveða hvaða tónlist verður flutt, hvort um lifandi tónlistarflutning eða upptökur verður að ræða og hverjir annast flutninginn.
Oft getur tónlistarvalið orðið ein af þeim leiðum sem fjölskyldan notar til að segja sögu einstaklingsins og gera athöfnina persónulegri.
Minningarorð og önnur þátttaka
Við undirbúning þarf einnig að ákveða hverjir koma að athöfninni, til dæmis kistuberar, skipuleggjendur o.s.fr
Minningarorð gefa svo tækifæri til að segja frá lífi hins látna, persónuleika, samskiptum og þeim minningum sem standa eftir. Þau þurfa ekki að segja alla ævisöguna heldur geta þau dregið fram það sem einkenndi einstaklinginn og skipti hann og fjölskylduna mestu máli.
Blóm, myndir og persónulegir hlutir
Sífellt algengara er að fjölskyldur setji persónulegan svip á útförina með ljósmyndum, blómum eða hlutum sem tengjast lífi og áhugamálum hins látna.
Ljósmynd getur til dæmis verið höfð við kistuna eða í sálmaskrá og blómaskreytingar valdar með tilliti til uppáhaldslita eða blóma viðkomandi.
Smáatriði af þessu tagi geta gert athöfnina persónulega og hjálpað til við að endurspegla líf þess sem verið er að kveðja.
Sálmaskrá og tilkynningar
Huga þarf að því hvort útbúa eigi sálmaskrá fyrir athöfnina. Þar koma gjarnan fram upplýsingar um dagskrá, sálma og tónlist ásamt mynd af hinum látna.
Einnig þarf að ákveða hvernig andlátið og útförin verða tilkynnt. Það getur meðal annars verið gert með andláts- og útfarartilkynningu og með upplýsingum sem fjölskyldan deilir sjálf með ættingjum og vinum.
Erfidrykkja
Margar fjölskyldur kjósa að koma saman eftir útförina. Erfidrykkjan getur verið mikilvægur hluti dagsins þar sem ættingjar og vinir fá tækifæri til að hittast, rifja upp minningar og eiga stund saman.
Ef halda á erfidrykkju þarf að ákveða staðsetningu, veitingar og áætlaðan fjölda gesta. Útfararstjóri getur einnig leiðbeint aðstandendum varðandi þessa þætti.
Ekki þarf að hafa öll svörin strax
Þegar andlát ber að höndum getur listinn yfir það sem þarf að ákveða virst langur. Mikilvægt er þó að hafa í huga að ekki þarf að leysa allt í einu eða mæta á fyrsta fund með allar ákvarðanir teknar.
Útfararstjóri leiðir aðstandendur í gegnum ferlið skref fyrir skref, fer yfir það sem þarf að ákveða og aðstoðar við framkvæmdina.
Hjá Útfararstofu Íslands leggjum við áherslu á að létta undir með aðstandendum á þessum erfiða tíma og veita faglega og persónulega þjónustu við undirbúning útfarar.
Markmiðið er að fjölskyldan geti einbeitt sér að því sem skiptir mestu máli; að kveðja ástvin sinn á þann hátt sem henni finnst réttur.
